ég verð nú bara að segja mönnum frá einum fáránlegast leik sem ég
hef spilað. Var að spila með Carpe Diem í bikarkeppninni í
utandeildinni í gær. Minn fyrsti alvöru leikur í eitt og hálft ár.
Fínn stemmari og allt vaðandi í færum hjá báðum liðum, við áttum 2
stangarog 2 sláar skot auk þes sem það var bjargað á línu. Þeir
áttu reyndar eitthvað af færum líka en hvaða hvaða

Fáránlegt að leikurinn hafi farið í framlenginu 0-0. Ég náttla í
mínu super formi vældi ekkert yfir því að spila 20 min í viðbót

Leikurionn fór í vító þar sem við biðum lægri hlut gegn Vagnherjum.
ég átti að taka 4 vítið en við töpuðum 4-1og fékk ég því ekki að
taka það.
Það er samt ekki oft sem ég hef haft jafn gaman af bolta eins
og í gær. Fáránleg barátta í báðum liðum nokkrar skuggalegar
tæklingar hægri vinstri. ég á eftir að vera eftir mig í margar
vikur eftir þetta held ég..... er með strengi uberalles
mar...
En annars er ég að fara til Eyja um næstu helgi á Toyota í golfi...
party party. Vonandi verður betra veður í ár en í fyrra. Þá var 30
m/s og úrhellli en við vorum samt látnir spila nánast í flotgöllum.
Afhverju eru samt íslendingar alltaf að pæla svona mikið í veðrinu.
Þegar þú ferð til útlanda og það er hringt í þig að heiman þá er
alltaf það fyrsta sem þú ert spurður að "hvernig er veðrið
þarna??". Er það vegna þess að það er svona áhugavert að vita
að það er 30° á spáni og 12 í Færeyjum eða!!! Eða er það kannski
bara það að það er eitthvað "veður" hér á Íslandi en ekki
annarsstaðar...hummmm
spater Bjorci